52 tákn frá ungmennum á Norðurlöndum

Hvernig segir maður „kærasti“ á sænsku táknmáli? Hvernig lítur „að skrópa“ út á finnsku táknmáli? Og hvernig er „að kyssa“ á íslensku táknmáli?

Eins og raddmál þróast táknmál stöðugt. Það er einkum yngri kynslóðin sem skapar ný orðatiltæki, breytir merkingum og tekur að láni tákn frá öðrum málum og menningarheimum. Þau móta táknmálið með lífsstíl sínum, húmor og samfélögum.

Ungt táknmálstalandi fólk notfærir sér oft amerísk eða alþjóðleg tákn til þess að skapa skilning sín á milli þegar það hittist og á samskipti yfir landa- og menningarmörk. Ungmenni á Norðurlöndunum fá einnig lánuð tákn hvert frá öðru sem skapa sameiginlegan skilning á milli landanna.

Í herferðinni „52 tákn frá ungmennum á Norðurlöndum!“ kynna ungmenni frá Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Íslandi í hverri viku tákn á sínu táknmáli. Herferðin verður sett af stað í tengslum við alþjóðlega viku heyrnarlausra í september 2025. Skoðaðu Instagram-reikninginn okkar og fylgstu með okkur í hverri viku þegar við birtum ný tákn!